Mánudagur, 6. júlí 2009
Rísum upp til baráttu fyrir land og þjóð
Kæru samherjar, þið sem eruð "verði keyptir", eins og postulinn sagði, eða eruð að minnsta kosti áhugafólk um kristin gildi. Er ekki löngu orðið ljóst að aðstæður samfélagsins hafa gerbreyst í pólitískum efnum, voru að umbreytast í vetur og fram að kosningum, en hafa jafnvel enn tekið stórtækum breytingum á allra síðustu vikum? Hefur ekki Icesave-málið enn orðið til að brengla flokkslínum, sameina suma og sundra öðrum, og liggja ekki hefðbundnu valdaflokkarnir í sárum eftir uppljóstranir um fjármál þar á bæjum, vegna efasemda um trúverðugleika og ábyrgðar á mörgu sem miður hefur farið?
Skyldi þetta líka vera verk Guðs? Hér skal það ekki predikað. Verum aðeins opin fyrir náð hans og leiðsögn. Áköllum hann, að verk okkar verði ekki til ónýtis, verði ekki eins og hálmurinn einber, heldur fyrir hans hjálp að traustum steinum til að byggja upp þjóð okkar.
Og vitum við ekki líka, að allt megnum við fyrir tilstuðlan hans, sem okkur styrka gerir (Fil. 4.13, I. Tím. 1.12)? En hvenær eru menn kallaðir til verka? Getur verið að okkur sé það nú sýnt, að Íslendingar eigi að sleppa allri minnimáttarkennd gagnvart hinni hefðbundnu 'stjórnmálastétt' (sem nú er farið að kalla svo) og treysta sjálfum sér til verka með fulltingi Guðs, já, ekki síst hinir kristnu þeirra á meðal, ef þeir finna til ábyrgðar sinnar? Segið þá mér, sem þetta rita, hvort þið teljið tíma til kominn að stofna opinberlega kristin stjórnmálasamtök.
Krist-bloggið birtist ekki enn á almennum síðum Moggabloggsins, eftir skipulagsbreytingu sem ákveðin var þar um áramótin. Þess vegna sjá þetta fáir, helst bloggvinirnir (fjörutíu og fjórir, þegar hér er komið sögu) og aðrir sem vita af okkur. En nú viljum við vera í beinna sambandi; tíminn nálgast þegar við upplýsum (hvert fyrir sig) hver við erum, þessi fjögur sem ritað höfum pistlana á þessari síðu.
Vafalaust hefur það haldið aftur af ýmsum að lýsa yfir stuðningi við þessi dularfullu samtök, þótt andinn í skrifum okkar hafi talað með nógu skýrum, kristnum hreimi til að ekki yrði um hann villst. Við höfum heldur ekki sóst eftir beinum stuðningi. Við erum engir sjálfkjörnir leiðtogar, en höfum ekki viljað sitja á hugmyndum ykkar og tillögum, sem bærst hafa með okkur, og andmælum gegn veraldarhyggju, þar sem út úr hefur flóð svo víða. Við þökkum ykkur þetta tækifæri sem við höfum fengið til að skrifa ýmislegt, því að ögrun er það og tækifæri að vita af áhugasömum hópi lesenda, sem við höfum reyndar alls ekki rækt sem skyldi á síðasta hálfa árið eða svo.
En nú er tími til kominn til að endurnýja samband við lesendur, til dæmis með því að hafa mjög lengi opið á umræðu um þessa grein, til að kalla eftir viðbrögðum ykkar og áliti og sjá svör ykkar við þeirri spurningu, sem hér var upp borin: Teljið þið tíma til kominn að stofna opinberlega kristin stjórnmálasamtök? Með þeim valkosti væri ekki verið að gera lítið úr viðleitni fólks í öðrum stjórnmálasamtökum, heldur að benda á að nú er kannski lag til að nýtt hreyfiafl komi inn í myndina og leggist á árarnar með öðru góðu fólki. Hver stjórnmálasamtök á þingi hafa sína þýðingu og geta í mörgum málum ráðið úrslitum með starfi sínu, kynningu málefna og atkvæðum.
Eiga kristnir menn að vera sem mest stikkfrí á stjórnmálavettvangi, þótt þrengi að þjóðinni, eða opna hug sinn fyrir möguleika þess, að Guð kalli okkur einnig til verka á þessu sviði?
Tölum saman!
K1
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Vefurinn, Trúmál og siðferði, Trúmál | Breytt s.d. kl. 01:19 | Facebook
Um bloggið
Kristinn þjóðarflokk !
Nýjustu færslur
- Engin norsk ríkiskirkja lengur!
- Hrörnunarstefna veraldarhyggjunnar "ber ávöxt"
- 130.000 flettingar á Krist.blog.is
- Hér vantar bæði vinstri flokk og kristinn flokk
- Norska ríkissjúkrahúsið í Ósló brýtur lög; áfrýjunarnefnd sam...
- Dauðsfall vegna umskurnar barns í Noregi
- Er niðurstaða forsetakosninganna vestanhafs þegar ráðin?
- Gjöf ásatrúarmanna var til fyrirmyndar - ennþá fleiri slíkar ...
- Mál samkynhneigðra gætu ráðið úrslitum í forsetakosningum í B...
- Á að beina unglingum í kynskiptiaðgerðir?
- Hryllileg grimmd og siðleysi
- Afar gróf mannréttindabrot viðgangast enn í Kína. Virðum mann...
- Undarleg frumvörp islamista í Egyptalandi
- Þurfa landeigendur að sækja um undanþágu til umhverfisráðherr...
- Krugman varar við "efnahagslegu sjálfsmorði Evrópu" (European...
Færsluflokkar
- Alræðisstefnur
- Andleg mál; Biblíutextar
- Áfengis- og fíkniefnamál
- Álver, stóriðja
- Biblíutextar
- Bloggar
- Borgarmálefni
- Bækur
- Dýravernd
- Dægurmál
- ESB
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fiskveiðar, útvegsmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fólksfækkunarvandi
- Fullveldi og sjálfstæði þjóðar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Icesave-málið
- Innflytjendamál
- Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Kynhneigðamál
- Landbúnaður, jarðamál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Nazismi, fasismi, Þriðja ríkið
- Ófæddir, lífsvernd
- Pepsi-deildin
- Samtökin, skipulag, félagslífið
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Sveitarstjórnarmál
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Uppeldis- og fjölskyldumál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Varnarmál og hernaður
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Vændi
- Þróunaraðstoð, 3. heimurinn
Tenglar
Yfirlit fyrri greina:
- 15.10.200920.11.2009 Þriðja yfirlitið um greinar á Krist.blog.is
- 19.5. 200914.10. 2009 2. greinayfirlitið á Krist.blog.is
- 9.3. 200715.4. 2009 Yfirlit pistla á Krist.blog.is frá upphafi 2007 til vors 2009
Bloggvinir
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Hafsteinn V Eðvarðsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jón Valur Jensson
-
Ólafur Þórisson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Aida.
-
Andri
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Hermannsson
-
Benedikta E
-
Bergur Thorberg
-
Bjarni Kjartansson
-
Björn Heiðdal
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson
-
Davíð Örn Sveinbjörnsson
-
Dóra litla
-
Elvar Atli Konráðsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Eygló Hjaltalín
-
Eyþór Arnalds
-
Flower
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
-
Guðlaug Helga Ingadóttir
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Haraldur Hansson
-
Guðni Karl Harðarson
-
Guðni Már Henningsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Haraldur Baldursson
-
Helena Leifsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Jónsson
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Hörður Finnbogason
-
Ingibjörg
-
Ingvar Leví Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Janus Hafsteinn Engilbertsson
-
Jens Sigurjónsson
-
Jeremía
-
Jóhann Kristján Valdórsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Baldur L'Orange
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
-
Karl V. Matthíasson
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Kristján Björnsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Mofi
-
Ragnar Kristján Gestsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Páll Vilhjálmsson
-
Ragnar Geir Brynjólfsson
-
Ragnar Gunnarsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Praise
-
Rödd í óbyggð, kristilegt félag
-
Samtök Fullveldissinna
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Sigurlaug B. Gröndal
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigvarður Hans Hilmarsson
-
Snorri Óskarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Sverrir Halldórsson
-
Theódór Norðkvist
-
Tryggvi Hjaltason
-
Unifer
-
Árni þór
-
Ívar Pálsson
-
Ólafur Jóhannsson
-
Ómar Geirsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Úlfar Þór Birgisson Aspar
-
Þormar Helgi Ingimarsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Jóhann Hauksson
-
Þórður Guðmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Óttar Felix Hauksson
-
Júlíus Björnsson
-
Kristinn Ásgrímsson
-
Gestur Halldórsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Heimssýn
-
S. Einar Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Birna M
-
Snorri Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Högni Hilmisson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
-
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir
-
Sigrún Jóna
-
Nonni
-
Tímanna Tákn
-
Þjóðarheiður
-
Barði Bárðarson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Birgir Þór Júlíusson
-
Bjarni Harðarson
-
Bleika Eldingin
-
Friðrik Agnar Ólafsson Schram
-
Gísli Foster Hjartarson
-
Hörður Sigurðsson Diego
-
Jónas Pétur Hreinsson
-
Jón Lárusson
-
Jón Pétur Líndal
-
Kristinn D Gissurarson
-
Kristján Hilmarsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi)
-
Páll Þorvaldsson
-
Samstaða þjóðar
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
S i g u r ð u r Sigurðarson
-
Vera
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
Eldri færslur
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 192
- Frá upphafi: 130293
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 136
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.